fimmtudagur
apr.072011

Sól og skuggar úr bókinni Draumagarður

Sól og skuggar

Pallur, stétt eða önnur dvalarsvæði eru gjarnan höfð þar sem skjólið er mest og sólin staldrar lengst við. Þessu er stundum öfugt farið í heitari löndum og þar eru pallar eða stéttir gjarnan í forsælu til að veita hvíld frá heitum sólargeislum.

Til þess að finna góða staðsetningu fyrir dvalarsvæði þarf að skoða hvernig sólin færist yfir himininn. Sólin skín á hliðar húss á mismunandi tímum dags. Þannig skín morgunsólin úr austri, hádegissólin úr suðri, eftirmiðdagssólin úr vestri og kvöldsólin, sem getur verið svo dýrmæt á hlýjum sumarkvöldum, úr norðvestri. Út frá þessu má sjá að hægt er að staðsetja dvalarsvæði í samræmi við þann tíma dags sem á að nota þau. Flestir miða við miðjan daginn og kvöldið en heitasti tími dagsins er yfirleitt milli kl. 13 og 15. Ekki má þó vanmeta morgunsvæðin sem snúa í suðaustur, sérstaklega ef það eru svæði sem falla inn í horn. Veggir hússins, skjólveggir og pallurinn draga í sig hitann frá því snemma á morgnana og því geta þessi suðaustlægu svæði orðið hlý og notaleg um hádegisbilið. 

fimmtudagur
mar.312011

Hönnun - úr bókinni Draumagarður

"Möguleikarnir á fallegri hönnun eru nær óendanlegir og hafa áhrif á hvernig hægt er að njóta íverunnar. Vel hannaður garður þjónar eigandanum í stað þess að hann verði þjónn garðsins. Innan fagsins hafa garðhönnuðir þróað ráð til að ná fram góðum heildaráhrifum með lágmarksviðhaldsþörf. Meðal margreyndra grunnhugmynda eru einfaldleiki, áhersla á sýn milli svæða, áherslusvæði og viðhaldslítill gróður. Með einfaldleika næst samræmi í efnisnotkun og viðhald á svæðum verður auðvelt og hagkvæmt. Skipulögð sýn milli svæða er útfærð þannig að lykilatriði eins og gosbrunnar eða sérstakar plöntur, sjást vel bæði frá nálægum dvalarsvæðum og fjarlægum setsvæðum og stígum. Ef viðhald og umsjón gróðurs á að vera sem þægilegast þá er ráð að þekja beð vel með gróðri. Þá nær sólin ekki að skína á moldina og illgresi á erfitt uppdráttar. Því geta gróðurþekjur, samsettar úr runnum sem laufgast snemma á vorin, minnkað þörf á umhirðu beða. Þetta er aðeins hluti þeirra aðferða sem auðvelda hönnun og umhirðu garðsins, en þau útskýra hvað mikilvægt er að mótuð sé skýr stefna um notkun og umhirðu strax á hönnunarstigi."

fimmtudagur
mar.172011

Útsýnið í Draumagarði

"Útsýni valið

Í mörgum görðum er hægt að velja og útfæra útsýni á hverju svæði garðsins. Þá má skyggja á hluta þess og heiðra annað. Þegar unnið er með útsýni úr görðum má líkja því við að ramma inn myndir og hengja upp á vegg. Munurinn er sá að það þarf ekki að finna mynd og flytja á staðinn heldur einungis að ramma staðarmyndina inn. Lykilstaðir eru skilgreindir í garðinum, áttir þar sem útsýni blasir við skráðar og skipulagið innan garðsins nýtt. Einnig er útsýni sem á ekki að sjást skráð og fundin tækifæri til að skyggja á það. Þannig má draga fram það besta í útsýninu, sameina það hönnun garðsins og koma jafnframt í veg fyrir að óæskilegt útsýni spilli upplifuninni."

þriðjudagur
des.212010

Landslag fyrir álfa

Garðar sem hannaðir eru fyrir bæði menn og álfa þurfa að vera útbúnir með ást og umhyggju. Í þessum garði eru álfar velkomnir um hann allan en svæði eru útbúin þannig að menn og álfar eigi sér sína griðastaði. Innan garðsins ein álfabyggð, einn mótstaður álfa og manna og einnig áningastaður álfa sem staðsettur er við sólpallinn. Álfabyggðin er samansett úr nokkrum steinum og grashól. Þar eru greiðar álfagötur inn og út úr garðinum. Skýr skil eru milli álfheima og mannheima sem í þessum garði eru útbúin með farvegi úr litríkri möl. Það þýðir ekki að menn og álfar séu ekki velkomnir um allan garðinn heldur ýtir það undir gangkvæma virðingu að fara yfir sérstök skil. Það sem mestu máli skiptir þegar garðar eru hannaðir fyrir álfa er að vera óhræddur að tala við álfana og spyrja þá hvað þeir vilja.

föstudagur
des.172010

Hvernig má laða álfa í garðinn?

Það hefur ekki verið mikið skrifað um gerð álfabústaða en þegar ég spurðist fyrir voru svörin mörg og flestum bar þeim vel saman. Þessar stuttu leiðbeiningar um gerð álfhóls tekur mið af þessum svörum og einnig útliti bústaða álfa eins og við þekkjum þá í náttúrunni. Til þess að útbúa garð þannig að hann laði til sína álfa þarf að bera virðingu fyrir náttúru og umhverfi. Álfar eru náttúruverur í miklum tengslum við gróður og móður jörð. Uppbygging bústaða þeirra þarf því að miða að því að góð jarðtengin fáist, sérstaklega þegar verið er að koma fyrir klettum, dröngum eða stórum steinum. Því stærra hlutfall steinsins sem er neðanjarðar því betri verður tengingin við jörðina. Til að tryggja þetta má miða við að tveir þriðju hluta hans séu neðanjarðar. Ef um er að ræða fleiri en einn stein þurfa þeir aða falla þétt saman og helst þannig að ekki sjáist í gegnum bilið á milli þeirra. Áður en slíkum steinum er komið fyrir má skoða lögun þeirra vel. Álfabústaðir þurfa dyr en þær eru ofanjarðar og myndast á flötum hluta steinsins. Því er sléttur flötur látinn standa upp úr jörðinni til að mynda dyrnar, halla eilítið mót himni en snúa þannig að þær nái annaðhvort sólargeislum morguns eða kvölds. Til þess þurfa dyrnar að snúa mót austri eða vestri. Álfar búa einnig í grashólum og ef hóll er mótaður fyrir álfa skal hann vera fallegur í laginu og lagaður með ást og umhyggju.