Skjólmyndun í görðum
21, 07, 2011
Á Íslandi er nær alltaf rok og ýmsar leiðir hafa verið reyndar til þess að minka áhrifin. Staðsetning og útfærsla girðinga, gróðurs og mannvirkja getur bæði myndað skjól og eins magnað upp vindsveipi. Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig best sé að mynda skjól og hvað beri að varast þegar garður er skipulagður eða honum breytt. Kenndar verða aðferðir við að meta skjólsvæði við hús með tilliti til umhverfisins. Farið verður í áhrif girðinga, jarðvegsmyndana, viðbyggingar húsa og gróðurskála auk þess að skoða hvert sé hlutverk gróðurs í skjólmyndun. Sýndar verða lausnir sem reynsla er komin á til þess að mynda gott skjól í görðum. Með bættu skjóli má fjölga útivistardögum sumarsins í garðinum.
Lengd: 1,5 klst
Verð: 4.900 kr
Skráning: bj@landslagsarkitekt.is eða http://www.facebook.com/event.php?eid=182944455103543

