Ráðgjafateikning unnin á staðnum: Húseigandi tekur fullan þátt í hönnun á meðan Björn skoðar aðstæður og teiknar upp hugmyndir og útfærslur fyrir garðinn. Teikningin verður til á staðnum en Björn hefur mikla reynslu í að meta aðstæður og koma með góðar lausnir.
Þrívíðar teikningar og hönnun: Allur garðurinn er teiknaður upp í þrívídd þannig hægt er að horfa á útfærslur og smáatriði frá öllum hliðum og því gott að þróa útfærslur garðsins með samvinnu hönnuðar og eiganda.
Grunnmynd með málsetningum: Þessi teikning er fyrir verktakann en á henni koma fram þau mál og hæðarsetningar sem þarf til að klára verkið.
Sérútfærslur og verkteikningar: Í mörgum görðum er verið að vinna með óvenjulegar aðstæður eða sérstakar útfærslur og þá er gott að vera með nákvæmar verkteikningar.
Magnútreikningar: Ef leita á eftir verðum hjá fleiri verktaka en einum þá er efnislisti með magni nauðsynlegur til að fá verðtilboð sem gott er að bera saman.
Gróðurskipulag: Þar sem sérstök áhersla er lögð á fjölbreyttan gróður getur sérstakt gróðurskipulag verið gott skref í áttina að draumagarðinum.
Lýsingateikning: Sumir garðar eru fallegastir á veturna þegar þeir eru upplýstir. Þá er vel útfærð lýsing punkturinn yfir i-ið.
Skjólráðgjöf: Björn hefur langa reynslu í að kljást við vind og oft geta rétt staðsettir skjólveggir og gróður gert gæfuminnin þegar kemur að notkun garðs.