top of page
Search

Heitur pottur hefur verið miðpunktur margra garða síðastliðna áratugi.

Greinilegt er að einkagarðurinn er alltaf að verða mikilvægari þegar kemur að heilsurækt. Síðustu áratugi hefur heiti potturinn gjarnan verið miðpunktur garðsins en nú eru margir aðrir, spennandi kostir að líta dagsins ljós. Einn af þeim er fullkomið úti-spa með heitum og köldum potti ásamt útisturtu. Við spáum því að þessi þrenning muni fá enn meira vægi í görðunum okkar á komandi ári. En hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að hönnun og staðsetningu baðsvæðisins?


Staðsetning og gott flæði

Þessi heiti pottur er vel staðsettur við hlið sturtu með skiptiaðstöðu ásamt nægum svæðum til að setjast niður.

Við hönnun baðsvæðisins er lykilatriði að hugsa um notagildi, útlit og næði. Ef mögulegt er ætti að staðsetja pottana tiltölulega nálægt húsinu þannig að þeir séu aðgengilegir frá húsi og öðrum hlutum garðsins. Þá er mun auðveldara að hlaupa berfættur á milli pottanna og inn í hús, sérstaklega í íslenskri veðráttu. Þegar pottur er staðsettur nálægt húsi er algengt að honum sé valinn staður við suðurvegg en þar er sólin sterkust. Þetta getur verið góð staðsetning, sérstaklega með tilliti til vetrarsólar, en heitir pottar nýtast ekki síður á þeim árstíma. Staðsetningin má þó ekki vera á kostnað besta sólbaðssvæðisins. Ef plássið er af skornum skammti má hugsanlega staðsetja hann þar sem kvöldsólar nýtur enda margir sem nota heita pottinn helst á kvöldin.


Í þessum garði er kaldi potturinn staðsettur undir skyggni við gufubaðshús.

Fjarlægð frá húsi getur haft mikil áhrif á það hversu mikið pottasvæðið er notað. Ef pottarnir eru staðsettir nálægt útidyrum getur notkun orðið talsvert meiri. Ef pottur er nálægt húsi og þá sérstaklega þar sem gengið er inn í baðherbergi er notkun mun auðveldari. Þó hefur pottur sem er langt frá húsi þann kost að baðsvæðið er vel aðskilið frá húsinu og oft einnig öðrum dvalarsvæðum garðsins sem minnkar truflun vegna hávaða og vatnssulls.


Skjólið eftirsótta

Heitur og kaldur pottur í góðu skjóli bæði fyrir vindi og nágrönnum.

Gott er að velja stað sem nýtur góðs af birtu og yl sólarinnar en er jafnframt í skjóli frá ríkjandi vindáttum. Ef vindur næðir um heitan pott er hætta á yfirborðskælingu vatnsins og því óstöðugu hitastigi. Heiti potturinn þarf líka að vera í skjóli fyrir nágrönnum en flestir vilja að pottasvæðið sé vel lokað frá umhverfinu. Það getur komið fallega út að setja pergólur yfir pottasvæðið. Það getur einnig haft gagnlegan tilgang eins og að minnka sýn inn á þessi svæði. Með gróðurhúsaplasti á pergólunni myndast þak sem skýlir fyrir regni og snjó.

Hér eru pottarnir við hlið gufubaðshúss með útisturtu. Lítil pergóla minnkar innsýn auk þess sem hægt er að hengja í hana ljósaseríu.


Skjólgirðingar eða hár gróður geta skapað notalegt skjól en ef svæðinu er lokað með skjólveggjum þarf að gera ráð fyrir að þeir varpi skuggum og eru skuggarnir talsvert lengri að vetri en sumri. Á sumum svæðum er hins vegar möguleiki á fallegu útsýni frá pottasvæðinu og þá þarf að meta það hversu mikið má sjást inn og hversu mikið út.

Hér má njóta útsýnisins í góðu skjóli frá glerveggjum.


Hönnunarstraumar og efnisval

Hér tengjast allir þættir smekklega saman með efnis- og litavali.

Fallegast er að pottasvæðið og umhverfi þess sé í samræmi og spili smekklega saman í efnisvali og útliti. Til þess að samræmast byggingareglugerð þarf pottur að vera í minnst 40 cm hæð yfir göngusvæðinu í kring. Algengast er að útbúa trépall í að lágmarki þeirri hæð og fella báða pottana niður. Ef svæðið tengist setbekk þá er gjarnan notuð þægileg setuhæð t.d. 0,45 m. Þetta skapar samfellt og fallegt útlit. Best er að vegalengdin milli heita og kalda pottsins sé lítil til að ná hámarks áhrifum og að þægileg hringrás myndist sem styður við heilsufarslegan ávinning heitra og kaldra baða.


Lýsing og stemning

Lýsing sem veitir bæði öryggi og skemmtilegt yfirbragð.

Rétt staðsett lýsing er mikilvæg þegar skapa á stemningu en einnig veita öryggi. Hún eykur notagildi garðsins þegar dagarnir eru styttri og er mikilvæg til að tengja saman íbúðarrými og dvalarrými utandyra. Það skiptir máli að lýsing valdi ekki óþægindum, skeri ekki í augu og flæði ekki mikið inn á nærliggjandi svæði.

Hlýleg lýsing frá LED-borðum og ljósaseríu.

Stemningslýsing: Vel hönnuð lýsing á pallinum og í kringum pottana getur verið áhrifarík. Ljósastaurar, veggljós, innfelld LED ljós í pallinum eða jafnvel LED lýsing undir þrepum geta skapað einstaklega rómantíska og notalega stemningu á kvöldin.

Öryggislýsing: Gott er að ganga úr skugga um að tröppur og gangsvæði séu vel lýst til að koma í veg fyrir slys.

Bein lýsing: Gott er að geta slökkt á beinni lýsingu til að upplifa betur stjörnubjartan himinn og norðurljós.


Útisturta, þægindi og aðbúnaður

Hér er notaleg aðstaða í sturtugarði með pergólu og bekkjum.

Við hönnun pottasvæðisins er vinsælt að gera ráð fyrir sturtuaðstöðu og þá sérstaklega ef langt er í sturtu innandyra. Mörgum þykir hressandi og þægilegt að fara í sturtu utandyra og sumir nota hana nánast eingöngu yfir sumartímann. Auðvelt er að fella sturtuaðstöðu inn í hönnun garðsins og margar mismunandi útfærslur hafa fæðst á teikniborðinu, allt frá einföldum sturtuklefum til heilu sturtugarðanna með slökunaraðstöðu. Einhvers konar fatahengi eða búningsaðstaða er nauðsynleg og þá er svokölluð veðursylla mikið þarfaþing en hún ver fatahengið fyrir regni. Handklæðahaldarar eru nauðsynlegir nálægt pottunum og setusvæði eða bekkur þar sem hægt er að hvíla sig á milli eða eftir pottferðir auka þægindi og notagildi svæðisins.


Í umfjöllun um strauma og stefnur í garðhönnun 2026 fjölluðum við um ríkari áherslu á aukahluti og yfirbragð glæsileika í garðinum. Verður baðsvæðið lúxushornið í garðinum þínum?


Gróður- eða garðhús hafa heldur betur slegið í gegn í garðateikningum undanfarið og allar líkur á að vinsældir þeirra muni aukast verulega árið 2026. Þessi hús bjóða upp á fjölbreytta möguleika í íslenskum görðum þar sem þau veita mikilvægt skjöl fyrir veðri og vindum og lengja sumarið í báða enda.


Hér er gengið úr gróðurhúsinu yfir á skemmtilegt svæði með útieldstæði.


Spennandi notkunarmöguleikar

Ekki er langt síðan að fólk tengdi gróðurhús nánast eingöngu við ræktun. Og svo sannarlega eru margir sem nýta þau aðeins eða að hluta til að rækta til dæmis matjurtir, sumarblóm eða ávaxtatré. Köld eða upphituð, stór eða smá, gróðurhús eru spennandi kostur og leið til aukinnar sjálfbærni fyrir fólk með græna fingur. Ef ætlunin er að láta húsið þjóna tvöföldum tilgangi, þ.e. til ræktunar- og sem samverustað, er ráðlegt að hafa gróðurhúsið það stórt að bæði sé pláss fyrir plöntur, borð og stóla.


Hinar miklu vinsældir gróðurhúsanna síðustu ár tengjast ekki eingöngu því mikla úrvali sem er nú í boði hér á landi heldur einnig því hversu margir hafa komið auga á þá fjölbreyttu notkunarmöguleika sem þau bjóða uppá. Gróðurhús henta einstaklega vel á Íslandi þar sem sumarið er stutt og allra veðra von en þar má njóta útiveru og birtu án þess að veðrið spilli fyrir. Með húsgögnum, upphitun, ljósum og öðrum þægindum, getur garðhúsið framlengt sumarið og boðið upp á margar góðar samverustundir.


Tenging húss og garðs

Í þessu gróðurhúsi myndast notaleg stemning með fallegum húsgögnum.


Í garðhönnun síðustu ára hefur verið áberandi tilhneyging að tengja saman heimili og garð þar sem innviðir hússins flæða út í umhverfið og stíll og efnisval heimilisins endurspeglast í hönnun garðsins. Samspil húss og garðs og skipting garðsins upp í herbergi með mismunandi tilgang er mikilvæg og þar kemur gróðurhúsið sterkt inn sem framlenging á húsinu. Hver vill ekki geta rölt með morgunkaffið út í hlýtt gróðurhús þar sem notalegur hægindastóll bíður og njóta þar morgunsins á meðan snjórinn fellur fyrir utan. Eða bjóða vinunum að spila úti í gróðurhúsi, hlusta á tónlist, taka yogaæfingu, lesa eða eiga notalega fjölskyldustund. Sumir nota gróðurhúsið sem auka borðstofu og halda þar matarboð og njóta þess að geta borðað úti í öllum veðrum. Og óvíða er betra að slaka á eftir annansaman dag í sínum eigin heimi og hlusta á vindinn.


Sumarfrí í gróðurhúsi

Gróðurhús og skjólgott svæði með innbyggðum bekkjum.


Veðrið á það til að spilla fyrir þegar njóta á sumarfrísins heima í garði en það verður ný upplifun með tilkomu garðhússins. Liggja má í gróðurhúsinu í sólbaði þótt vindurinn hvíni úti og hlusta á suðræna tónlist. Margir njóta þess að borða undir berum himni erlendis og þá fáu daga sem veður leyfir hér heima, en þarna er kominn frábær staður til að borða úti hvernig sem viðrar. Lautarferð með börnin út í gróðurhús með teppi og nesti er spennandi kostur fyrir smáfólkið og útheimtir ekki löng ferðalög og litlir fingur hafa gaman af því að aðstoða við að rækta tómata og fleira spennandi.


Staðsetning gróðurhússins

Hér spila gróðurhús og pergóla vel saman.


En hvar á að staðsetja gróðurhúsið? Er það aðallega hugsað til ræktunar eða er kostur að hafa það nálægt húsinu svo fljótlegt sé að skjótast á milli með veitingar í garðskálaveisluna? Á gróðurhúsið að vera hluti af pallinum eða hljóðlátt afdrep í horni garðsins? Útsýnið frá gróðurhúsinu er eitthvað sem þarf að hugsa um en það má gjarnan vera yfir gróðursælt svæði eða hafa fallega yfirsýn yfir náttúru eða borg. Staðsetningin getur einnig ráðist af stærð garðsins og því hvar pláss er að finna. Stundum hentar best að hafa gróðurhúsið áfast húsinu en gott er ef gróðurhúsið nýtur sólar allt árið um kring, sérstaklega ef helsti tilgangurinn er ræktun. Heppilegt er að láta framhliðina snúa í suður eða vestur þannig að sólar njóti sem mest við innganginn en svæðið fyrir framan gróðurhúsið getur nýst sem sólpallur eða vinnusvæði með umpottunaraðstöðu og upphækkuðum ræktunarkössum. Gróðurhúsið sjálft má líka nota til þess að mynda skjól í garðinum í samspili við skjólveggi og önnur mannvirki.


Horft innan úr gróðurhúsi út á flísalagt dvalarsvæði.


Gróður- eða garðhús er heillandi kostur í garðinum sem nýtist á margvíslegan hátt. Í hugmyndaleit er sniðugt að nýta vefsíður eins og Pinterest en þar má sjá hvernig fólk hefur innréttað og skapað sinn eigin heim í gróðurhúsinu. Leyfðu hugmyndafluginu að ráða og nýttu þér þennan spennandi valkost til að stækka heimilið þitt og njóta þess að eiga stundir utandyra í öllum veðrum!

Við upphaf vetrar höfum við hjá Urban Beat haft þann sið að líta til baka yfir verkefni ársins og spá síðan fyrir um hver verða helstu áhersluefnin í garðhönnun á komandi ári. Þetta eru skemmtilegar pælingar þar sem við skoðum það helsta sem er á döfinni erlendis og hér heima, litaval, skipulag og spennandi nýjungar.


Heitur, kaldur og notaleg sturta


Hér má njóta útsýnis í góðu skjóli þar sem heitur og kaldur pottur hafa verið staðsettir saman. Trefjar bjóða upp á mikið úrval vandaðra potta ásamt öllum aukahlutum. https://trefjar.is/heitir-pottar/#pottarnir


Undanfarið höfum við séð aukna áherslu í þá átt að nýta garðinn til heilsuræktar og heitir og kaldir pottar spila þar svo sannarlega stórt hlutverk. Á komandi ári mun sá mikli áhugi sem við höfum séð á þessari pottatvennu án efa fara vaxandi. Útisturtan nýtur einnig mikilla vinsælda meðal viðskiptavina okkar enda fátt meira hressandi en góð sturta utandyra. Við spáum því að þessi þrenning muni fá enn meira vægi í görðunum okkar á komandi ári.



Gufubað fyrir heilsuna


Hér er skemmtileg samsetning gufubaðs, útisturtu, potts og geymslubekkjar. Verslunin Sauna sérhæfir sig í gufuböðum og hjá þeim er að finna hágæða lausnir fyrir heilsueflandi garða. https://sauna.is/collections/utisaunur


Og áfram með heilsufarslegan ávinning þess að eiga garð, sýnt hefur verið fram á hollustu þess að fara í gufubað og þá jafnt fyrir líkamlega sem andlega heilsu. Við höfum grun um að vinsældir þess að eiga sitt eigið gufubað muni aðeins fara vaxandi enda margar spennandi lausnir og útfærslur í boði!



Eldað úti í öllum veðrum

Hér er veglegt útieldhús með margvíslegum búnaði.


Útieldhús hafa notið gríðarlegra vinsælda síðustu ár og í görðunum okkar hafa orðið til alls kyns útfærslur, allt frá litlum grillskýlum upp í stærðar eldhús. Við höfum trú á að vinsældir útieldhúsanna muni síst fara minnkandi á komandi ári heldur springa út með tilkomu alls kyns nýjunga og aukahluta. Við hlökkum til að sjá hvert árið 2026 mun leiða okkur í þessari spennandi þróun.


Sumarið lengist svo um munar

Til eru fjölbreytt og vönduð gróðurhús sem henta íslenskum aðstæðum.


Það mannvirki sem virðist vera að slá algjörlega í gegn í görðum landsmanna er gróðurhúsið eða garðhýsið. Sá möguleiki að geta lengt sumarið svo um munar með þessum fallegu glerhýsum heillar marga og þá alls ekki aðeins til að rækta gróður. Borðstofa, slökunarrými, yogastúdíó eða hobbíherbergi, notkunarmöguleikarnir eru ótal margir.


Viðhaldslítill garður

Í þessum garði er úr mörgu að velja, púttvöllur, heitur pottur, gufubað, útisturta, kampavínsveggur og svæði til slökunar. Vinnan við viðhald mun þó ekki verða mikil þar sem gróður er í lágmarki og notast er við flísahellur og gervigras.


Garður sem krefst lítils viðhalds og hægt er að njóta, án þess að hafa samviskubit yfir öllu því sem þarf að sinna, er draumur margra. Að reyta arfa, bera á palla og klippa runna er ekki fyrir alla og uppteknu fólki þykir gott að geta notað garðinn til slökunar og tómstunda. Árið 2026 munu eflaust margir leggja áherslu á að geta nýtt frístundirnar í garðinum á þann hátt og hönnunarvinnan mun taka mið af því.



Fyrir árin eftir vinnu

Í þessum garði hefur verið komið fyrir gervigrasi og púttvelli ásamt þægilegum bekkjum.


Þegar hægist um hjá fólki og frístundum fjölgar vex mörgum í augum sú vinna sem fer í að

sinna viðhaldi garðsins. Fólk vill gjarnan nota tímann til að sinna hugðarefnum og fólk sér ekki fyrir sér umhirðu garðs í framtíðarplaninu auk þess sem mörgum reynist sú líkamlega vinna sem tilheyrir garðstörfum erfið. En þetta eru einmitt þau atriði sem auðvelt er að taka inn í ferlið og hanna viðhaldslitla en jafnframt glæsilega garða sem taka mið af þörfum hvers og eins. Vel hannaður og fallegur garður getur þess vegna verið einn af þeim hlutum sem veita ánægju um ókomin ár.


Litapalletta sem veitir hlýju

Hlýir litatónar í bland með gráu og svörtu.

Gjarnan er sagt að tískan fari í hringi. Svartir og gráir litatónar hafa lengi verið áberandi í garðhönnun og munu halda velli áfram. Þó sjáum við tilhneygingu til bjartari litatóna, brúntóna litir koma sterkari inn ásamt mosagrænum tónum. Við sjáum fyrir okkur litatóna kaffibaunanna, málmtóna koparsins og dempaða mosaliti. Og síðan en ekki síst litapallettu sem tekur mið af hverju heimili fyrir sig og endurspeglar í enn ríkari mæli en áður áherslur og stíl eigendanna.


Glæsileiki og þægindi

Horft inn í útieldhús, pottasvæði og gróðurhús í bakgrunni.

Vel hannaðir og útfærðir garðar eru eðlilegt framhald af húsinu sjálfu og falleg garðhúsgögn og annar aukabúnaður setja punktinn yfir i-ið. Úrval vandaðra húsgagna, útieldhúseininga, grilla og gróðurkerja hefur aukist mikið síðustu ár ásamt fjölbreyttri lýsingu sem lyftir garðinum upp á annað stig. Árið 2026 verður árið þar sem enn ríkari áhersla verður lögð á þessa aukahluti og garðarnir munu í auknum mæli fá á sig lúxusyfirbragð.


Meiri tækni í hönnunarvinnu

Að skoða garðinn sinn í sýndarveruleika er frábær leið til að sjá hvernig hann kemur til með að líta út og hvernig húsið og garðurinn spila saman.

Hjá Urban Beat hefur alltaf verið lögð áhersla á að nýta nýjustu tækni í hönnunarferlinu. Við teiknum alla garðana okkar í þrívídd og leggjum áherslu á vandaða grafík. Viðskiptavinir okkar skoða garðana sína í sýndarveruleika og eiga því mun auðveldara með að sjá fyrir sér hvernig garðurinn þeirra muni koma til með að líta út eftir framkvæmdir. Við nýtum okkur einnig öpp sem sýna sólargang eftir mismunandi árstíðum, þrívíðar skannanir og einnig aðstoðar gervigreindin okkur við myndrænar útfærslur og samanburð mismunandi lausna.


Við hjá Urban Beat bíðum spennt eftir komandi hönnunarári og hlökkum til að fylgjast með nýjungum og spennandi tækifærum í garðhönnun sem gera okkur kleift að njóta lífsins enn betur í garðinum.

bottom of page